Lootsmans-feðgar hófu sjókortagerð í samkeppni við Blaeu og Janssonius um miðja 17. öld. Ættarnafn feðganna var í rauninni Jacobsz en þeir notuðu Lootsman til að skilja sig frá öðrum með sama nafn. Frá hendi þeirra eru nokkur söfn sjókorta sem komu út á ýmsum tungumálum. Íslandi bregður fyrir á nokkrum korta feðganna, þ. á m. á þessu sérkorti. Kortið virðist gert eftir uppdráttum Van Keulens eða eiga sameiginlegan uppruna með þeim. Vestfirðir eru orðnir að tveimur skögum og stefnir hinn syðri í vestur en hinn nyrðri til norðurs.