Kortið er einn hluti af fjórum af fjölblaðakorti sem spannar norðvesturhluta Evrópu. Það fylgdi með The Universal Dictionary of Trade and Commerce eftir Malachy Postlethwayt. Kitchen var afkastamikill kortagerðarmaður og eftir hann liggur fjöldi uppdrátta sem birtust í hinum ýmsu landfræðiritum. Ísland á þessu landabréfi er eftirmynd af korti Jorisar Carolusar, eða einhverri útgáfu þess, en allt minna og ágripskenndara.