Talið er að John Gatonbe hafi verið með í síðasta Grænlandsleiðangri James Hall árið 1612 og er kortið venjulega talið frá því ári. Ekki er þó útilokað að það hafi verið gert eitthvað seinna og að undirstaðan sé kort frá Hall eða önnur gögn frá honum. Kortið var fyrst prentað 1732 í 6. bindi A Collection of Voyages and Travels. Þau eintök sem sýnd eru hér eru líklega úr 3. útgáfu ferðasögusafnsins frá 1746.
Ísland er gert af talsverðu handahófi. Vestfirðir eru meiri um sig en skyldi og sama er að segja um Reykjanes en Snæfellsnes vantar. Athyglisverðasti hluti kortsins, ef vesturströnd Grænlands er skilin undan, er eyja nokkru vestar en í miðju hafi milli sunnanverðra Vestfjarða og Grænlands. Ef allt er með felldu mundu hér komnar Gunnbjarnarey(jar) og Gunnbjarnarsker með breyttum heitum.