Strandlengjan samkvæmt Knoffs-kortunum er mörkuð svartri línu en inn á myndina er dregið Íslandskort Verdun de la Crenne í grænum lit. Væntanlega er kortið gert af Reinecke til að sýna hvað hans Íslandsgerð er frábrugðin þeim sem á undan komu. Kortið er úr Allgemeine geographische Ephemeriden eftir Adam Christian Gaspari og Friedrich Justin Bertuch.