Útgefandi kortsins var bókaútgefandinn Pieter van der Aa en frá hans hendi er mikill fjöldi kortasafna, einkum frá fyrstu tveim áratugum 18. aldar. Flest eru kortasöfn þessi ártalslaus og því illt að átta sig á þeim auk þess sem þau eru mjög mismunandi að kortafjölda og sum þeirra prentuð hvað eftir annað eftir sömu myndamótum. Kortið kemur sennilega fyrst fyrir í kortasafni á frönsku, L'Atlas, Soulange de son gros & pesant fardeau: ou Nouvelles cartes geographiques, ártalslaust en einhvern tíma frá árunum kringum 1710.
Kortið er prentað eftir sama eða svipuðu myndamóti og kort Johannesar Janssoniusar frá 1628.