Kaert von Groen-Land

Nafn kortagerðarmannsins er ekki vitað en kortið fylgdi Grænlandsfrásögn Isaac de La Peyrére í þýskri útgáfu, Ausführliche Beschreibung des Theils bewohnt - theils unbewohnt - so genannten Gröenlands. Ísland liggur sérkennalaust í hánorður frá Skotlandi og er fremur óhrjálegt að allri gerð. Kortið er af Grænlandi og hefur sennilega ekki átt að gera Íslandi nein viðhlítandi skil. Fyrir neðan það eru fjórar myndir úr náttúru og dýralífi landanna.

Nánar

Útgáfuland: Þýskaland
Útgáfuár: 1679

Útgáfustaður: Nürnberg
Útgáfuár: 1679
Stærð: 17,5×27 sm