Coronelli er kunnastur fyrir jarð- og himinlíkön sín og landabréfasafn sitt, Atlante Veneto, sem kom í 13 bindum á síðasta áratug 17. aldar. Þetta kort birtist í einu þeirra, sem kallað var Isolario (1697), og einnig í annarri kortabók Coronellis, Corso geografico universale (1692). Hægt er þekkja kortin úr þeim í sundur á því að það úr fyrri bókinni er með titilfeld efst í hægra horninu en hitt ekki.
Þegar ýmis minni háttar ónákvæmni er undanskilin er kortið allgóð eftirmynd af korti Jorisar Carolusar. Stafsetning örnefna bendir til þess að Coronelli hafi fremur haft fyrir augunum gerð Johannesar Janssoniusar heldur en Willem Janszoon Blaeus.