Paskaarte van Ysland, Spitsberge en Ian Mayen Eyland

Van Keulen fyrirtækið var það afkastamesta í sögu hollenskrar sjókortagerðar. Það var sett á stofn af Johannesi van Keulen undir lok 17. aldar og hélst í höndum ættarinnar til ársins 1823. Talið er að það hafi gefið út ekki færri en 135 bindi sjókorta með nálægt 600 mismunandi kortum og kemur Ísland fyrir á nokkrum þeirra.
Kortið er sérkort af hverju þessara þriggja landa fyrir sig og er Íslandskortið helmingur þess. Íslandsgerð kortsins er svipuð og var á mörgum hollenskum sjókortum á 17. og 18. öld. Landið er mjög stórskorið og Vestfirðir eru klofnir í tvo skaga sem vísa norður og vestur.

Nánar

Höfundur: Johannes van Keulen
Útgáfuland: Holland
Útgáfuár: 1682

Útgáfa 1
Útgáfustaður: Amsterdam
Útgáfuár: 1682
Stærð: 50,5×57,5 sm
Útgáfa 2
Útgáfustaður: Amsterdam
Útgáfuár: 1682
Stærð: 50,5×57,5 sm