Emanuel Bowen sótti hugmyndir sínar um Ísland til Hermans Molls. Þótt að kortið sé frekar illa dregið sést að Ísland er af stofni Jorisar Carolusar og Guðbrands biskups Þorlákssonar. Kortið kemur úr Atlas Minimus sem Bowen gaf út með John Gibson.