Nieuwe en seer Accurate Paskaart van het Eyland Yslandt In het Groot

Van Keulen fyrirtækið var það afkastamesta í sögu hollenskrar sjókortagerðar. Það var sett á stofn af Johannesi van Keulen undir lok 17. aldar og hélst í höndum ættarinnar til ársins 1823. Talið er að það hafi gefið út ekki færri en 135 bindi sjókorta með nálægt 600 mismunandi kortum og kemur Ísland fyrir á nokkrum þeirra.
Kortið sem hér um ræðir er bara árfært til hálfs en það mun hafa verið gert nálægt 1750. Á því er Ísland af hinni fornu sjókortagerð eins og hún hafði þróast í höndum hollenskra kortagerðarmanna frá seinni hluta 17. aldar. Höfundinum hefur orðið það á í messunni að flytja Bessastaði yfir á Austurland. Uppdráttur þessi var líklega aðeins prentaður sem lausblaðakort og þá væntanlega ætlaður til leiðbeiningar fiskimönnum er sigldu á Íslandsmið.

Nánar

Höfundur: Johannes van Keulen
Útgáfuland: Holland
Útgáfuár: 1750

Útgáfa 1
Útgáfustaður: Amsterdam
Útgáfuár: 1750
Stærð: 51×57 sm
Útgáfa 2
Útgáfustaður: Amsterdam
Útgáfuár: 1750
Stærð: 51×57 sm