Caerte van Ysland

Lootsmans-feðgar hófu sjókortagerð í samkeppni við Blaeu og Janssonius um miðja 17. öld. Frá hendi þeirra eru nokkur söfn sjókorta sem komu út á ýmsum tungumálum. Íslandi bregður fyrir á nokkrum korta feðganna, þ. á m. á þessu sérkorti. Kortið virðist gert eftir uppdráttum Van Keulens eða eiga sameiginlegan uppruna með þeim. Vestfirðir eru orðnir að tveimur skögum og stefnir hinn syðri í vestur en hinn nyrðri til norðurs.

Nánar

Höfundur: Casparus Lootsman
Útgáfuland: Holland
Útgáfuár: 1699

Útgáfustaður: Amsterdam
Útgáfuár: 1699
Stærð: 42×25,5 sm