Útgáfa
Útgáfustaður:
Amsterdam
Útgáfuár:
1690
Stærð:
51×58,5 sm
- PDF skjal (1.4 MB)
- Hágæða PDF (5.0 MB)
- JPG mynd (5.0 MB)
Paskaarte van Ysland, Spitsberge en Ian Mayen Eyland
Útgáfuland:
Holland
Útgáfuár:
1690 (um það bil)
Van Keulen fyrirtækið var það afkastamesta í sögu hollenskrar sjókortagerðar. Það var sett á stofn af Johannesi van Keulen undir lok 17. aldar og hélst í höndum ættarinnar til ársins 1823. Talið er að það hafi gefið út ekki færri en 135 bindi sjókorta með nálægt 600 mismunandi kortum og kemur Ísland fyrir á nokkrum þeirra.
Kortið er sérkort af hverju þessara þriggja landa fyrir sig og er Íslandskortið helmingur þess. Íslandsgerð kortsins er svipuð og var á mörgum hollenskum sjókortum á 17. og 18. öld. Landið er mjög stórskorið og Vestfirðir eru klofnir í tvo skaga sem vísa norður og vestur.