Kortið fylgdi Grænlandsfrásögn Isaac de la Peyrére, sennilega þýsku útgáfunni, Ausführliche Beschreibung, sem kom út í Nürnberg 1679. Ísland liggur sérkennalaust í hánorður frá Skotlandi og er fremur óhrjálegt að allri gerð. Kortið er af Grænlandi og hefur sennilega ekki átt að gera Íslandi nein viðhlítandi skil. Fyrir neðan það eru fjórar myndir úr náttúru og dýralífi landanna.