Uppdráttur Reykjavíkur

Á kortinu sést að nokkur byggð er komin í Þingholtunum og í Skuggahverfi. Húsaröð er risin upp með Vesturgötu og suður með Suðurgötu. Búið er að reisa hegningarhús við Skólavörðustíg. Austurvöllur hefur verið girtur og á honum miðjum er stytta Thorvaldsens. Helstu stofnanir eru tölusettar. Árið 1876 voru íbúar í bænum um 2.400.
Sveinn Sveinsson (1849-1892) var búfræðingur. Hann gerði þetta kort fyrir Reykjavíkurbæ vegna brunatrygginga á húseignum. 

Nánar

Höfundur: Sveinn Sveinsson
Útgáfuland: Óþekkt land
Útgáfuár: 1876

Mælikvarði: 1:3 000
Útgáfuár: 1876
Stærð: 38×55,2 sm