Septentrionalivm terrarum descriptio

Pólkort Mercators úr Atlas sive cosmographicæ. Norðurskautið er miðdepill kortsins, þar sem allir lengdarbaugar koma saman. Ísland er frekar smátt og sérkenna þess gætir lítið en það sést þó að landið er dregið eftir korti Guðbrands biskups Þorlákssonar. Örnefni eru 22 og er stafsetning þeirra lítið breytt frá Íslandskorti Mercators. Frísland og aðrar eyjar Zeno-kortsins eru á kortinu eftir því sem hnattstaða þeirra fellur að umgjörð þess. Í þremur hornum kortsins eru hringlaga sérkort í auknum mælikvarða af Færeyjum, Fríslandi og Hjaltlandi.

Nánar

Höfundur: Gerhard Mercator
Útgáfuland: Holland
Útgáfuár: 1595

Útgáfa 1
Tungumál: Latína
Útgáfuár: 1595
Stærð: 36,4×39 sm
Útgáfa 2
Útgáfuár: 1595
Stærð: 36,4×39 sm
Útgáfa 3
Útgáfuár: 1595
Stærð: 36,4×39 sm
Útgáfa 4
Útgáfuár: 1595
Stærð: 36,4×39 sm