Frislanda

Fríslandi bregður fyrir á mörgum gömlum kortum sem sýna Norður-Atlantshaf og löndin þar í kring. Á Zeno-kortinu svonefnda frá 1558 kemur það fyrst fram undir því nafni. Fræðimenn hafa löngum deilt um hvað eyjan eigi að tákna. Flestir töldu fyrst að hún væri Færeyjar en aðrir sögðu hana tvífara Íslands. En nú telja menn líklegast að hún sé sambland úr báðum löndum. Kortið er úr Corso geografico universale eftir Vincenzo Coronelli og er eftirmynd af hluta Zeno-kortsins.

Nánar

Höfundur: Vincenzo Coronelli
Útgáfuland: Ítalía
Útgáfuár: 1692-1694

Útgáfustaður: Feneyjar
Útgáfuár: 1692
Stærð: 22,5×30 sm