Nova Gronlandiae Islandiae et Freti Davis Tabula

Kortið fylgir bók Andersons, Nachrichten von Island, Grönland und der Strasse Davis, sem kom út í Hamborg 1746 og var svo endurprentuð og þýdd á ýmis mál. Höfundurinn var þá látinn og líklega á hann engan þátt í gerð kortsins sem er af venjulegri gerð hollenskra sjókorta frá síðustu árum 17. aldar. Kortið fylgir öllum útgáfum bókarinnar með breyttum titilfeldum.

Nánar

Höfundur: Johann Anderson
Útgáfuland: Þýskaland
Útgáfuár: 1746-1748

Útgáfuár: 1746
Stærð: 35,7×28,8 sm