Iceland

Kortagerðarmaðurinn Herman Moll starfaði í Englandi en var af hollenskum uppruna. Hann hafði Íslandsgerð sína fullbúna snemma á ferli sínum og vék ekki frá henni síðar. Kortið á rætur sínar að rekja til Hollands eins og höfundurinn, það er af gerð Jorisar Carolusar. Vestfirðir eru eins og þríhyrningur í laginu og suður- og austurstrendurnar eru of beinar. Á sama blaði og Íslandskortið eru tvö önnur kort, af Færeyjum og hringiðu í hafinu.

Nánar

Höfundur: Herman Moll
Útgáfuland: England
Útgáfuár: 1730

Útgáfa 1
Útgáfuár: 1730
Stærð: 9×12,5 sm
Útgáfa 2
Útgáfuár: 1730
Stærð: 9×12,5 sm