Conterfactur der 3 Schiffarten welche di Holländer durch das Mitnachtischen Mer nemlich bey Norwegen Mosca Nova Zembla

Einn af nafnkunnustu sæförum Hollendinga um þessar mundir var Willem Barents. Honum er jafnan eignað kort af Norðurvegum sem gefið var út eftir lát hans undir lok 16. aldar. Frumprentun kortsins er í latnesku útgáfunni af ferðasögu Johannesar Linschotens. Ekki er vitað hvort kortið er í raun og veru eftir Barents og hefur það verið eignað ýmsum öðrum.
Hnattstaða Íslands á kortinu er svipuð og hjá Orteliusi, enda virðist höfundurinn hafa haft kort hans að undirstöðu, þó varla að beinu handsali. Þegar kemur á þær slóðir hefur höfundurinn líklega fremur farið eftir Íslandskorti Lucasar Janszoonar Waghenaers. Örnefnin virðast ekki valin af staðkynnum eða þekkingu á landinu og býsna tilviljunarkennt hvað tekið er með og hverju sleppt. Allt er þetta með svipuðum hætti og tíðast var um Ísland á þessum árum.
Kortið eða eftirmyndir þess voru síðan birtar í ýmsum ritum næstu árin en oftast með einhverjum breytingum, t. a. m. hjá Theodore de Bry í Dritter Theil Indiae orientalis, Frankfurt 1599. Eftirmynd de Bry er dálítið minnkuð en að öðru leyti allnákvæm.

Nánar

Höfundur: Theodore de Bry
Útgáfuland: Þýskaland
Útgáfuár: 1599

Útgáfustaður: Frankfurt
Útgáfuár: 1599
Stærð: 27,3×35,5 sm