Les Royaumes de Suede et de Norwege

Um miðja 18. öld voru Robert de Vaugondy og sonur hans í hópi þekktustu kortaútgefenda Frakka. Merkast af kortasöfnum þeirra er Atlas universel sem C. F. Delamarche tók síðar við. Ísland er íauki á stóru korti af Skandinavíu. Kortið er eftirmynd af korti d'Anvilles, nema bæði séu gerð eftir sama eða svipuðu forriti.

Nánar

Höfundur: Robert de Vaugondy/Charles Francois Delamarche
Útgáfuland: Óþekkt land
Útgáfuár: 1793

Útgáfa 1
Útgáfuár: 1793
Stærð: 48,5×57 sm
Útgáfa 2
Útgáfuár: 1793
Stærð: 48,5×57 sm