Novissima Islandiæ tabula

Kortið kemur úr English Atlas sem Moses Pitt gaf út en hann tók við kortaútgáfu Johannesar Janssoniusar eftir lát hans. Það er hið kunna kort Jorisar Carolusar, búið nýju nafni og nýrri umgerð. Skip og annað skrímslið sem Janssonius og Willem Janszoon Blaeu hafa fyrir sunnan landið í útgáfum sínum á korti Carolusar, hafa orðið að víkja fyrir titilfeldi. Landið sjálft er prentað óbreytt og virðist ekki hafa verið hróflað við myndamóti Janssoniusar hvað það snertir. Kortinu fylgir lýsing á landinu eftir William Nicolson, erkidjákna og síðar biskup.

Nánar

Höfundur: Moses Pitt
Útgáfuland: England
Útgáfuár: 1680-1683

Útgáfa 1
Útgáfustaður: Oxford
Útgáfuár: 1680
Stærð: 38×49 sm
Útgáfa 2
Útgáfustaður: Oxford
Útgáfuár: 1680
Stærð: 38×49 sm
Útgáfa 3
Útgáfustaður: Oxford
Útgáfuár: 1680
Stærð: 38×49 sm
Útgáfa 4
Útgáfustaður: Oxford
Útgáfuár: 1680
Stærð: 38×49 sm
Útgáfa 5
Útgáfustaður: Oxford
Útgáfuár: 1680
Stærð: 38×49 sm
Útgáfa 6
Útgáfustaður: Oxford
Útgáfuár: 1680
Stærð: 38×49 sm