Les Royaumes de Suede et de Norwege

Um miðja 18. öld var Robert de Vaugondy í hópi þekktustu landfræðinga Frakka. Merkast af kortasöfnum hans er Atlas universel þar sem er m. a. að finna þetta kort. Það er íauki á stóru korti af Skandinavíu. Ísland er minnkuð eftirmynd af sérkorti Nicolas Sansons af landinu en Vaugondy var skyldur Sansonunum og hafði eignast nokkur af kortamótum þeirra.

Nánar

Höfundur: Robert de Vaugondy
Útgáfuland: Frakkland
Útgáfuár: 1756

Útgáfa 1
Útgáfustaður: París
Útgáfuár: 1756
Stærð: 48,5×57 sm
Útgáfa 2
Útgáfustaður: París
Útgáfuár: 1756
Stærð: 48,5×57 sm