Situations-Kaart over Reikevig og Omliggende Beijer

Ole Mentzen Aanum og Ole Ohlsen voru norskir liðsforingjar sem höfðu verið sendir hingað til lands um aldamótin 1800 til strandmælinga. Á meðan þeir dvöldust í Reykjavík óskaði rentukammerið eftir því að þeir gerðu aðstöðuuppdrátt af kaupstaðnum með staðfræðilegri lýsingu.
Þrjú eintök af uppdrættinum eru kunn. Þessu afbrigði svipar mjög að allri gerð til uppdráttarins hjá Sjómælingastofnuninni en kort þeirra félaga lentu flest þar. Kortið snýr öfugt við venju, þannig að suður er upp en austur til vinstri.
Uppdrættirnir spanna svæðið frá Seli inn fyrir Arnarhól. Öll hús sem þá voru í bænum eru sýnd og skipt með mismunandi litum eftir byggingarefni í steinhús, timburhús og torfbæi. Hverju húsi fylgir tala sem vísar til skýringa við jaðra og greinir frá eigendum. Húsin eru 42 talsins. Í sérstakri athugasemd segir frá því hver þeirra eru byggð eftir að bærinn hlaut kaupstaðarréttindi, eða frá árinu 1788, og eru þau 16. Nokkur kotanna umhverfis bæinn eru nafngreind en flest eru þó nafnlaus.

Nánar

Höfundur: Ole Mentzen Aanum/Ole Ohlsen
Útgáfuland: Óþekkt land
Útgáfuár: 1801

Útgáfuár: 1801
Stærð: 31,8×41,8 sm